ALLABALL!
45 ára Afmælisveisla ALLA
Gleðilegt afmæli Alli! Krýningu er lokið og fyrsti Allaballi ársins 2026 er krýndur.
Krýningu 2026 er lokið. Allaballi ársins er Íris. Næsti útdráttur verður á næsta Allaballi.
Hvað er Allaballi ársins?
Fyrir þá sem eru að verða 45 ára eða eldri er orðið «Allaballi» fullt af sögulegri merkingu, gælunafn yfir stuðningsmenn Alþýðubandalagsins, sem var einn stærsti flokkur landsins frá 1956 til 1999.
Í afmælisboði Alla er leikið með orðið. Allaballi er ekki lengur pólitískur herstöðvarandstæðingur, heldur einfaldlega stuðningsmaður afmælisbarnsins. Þess vegna heitir veislan Allaball!
Einn heppinn vinningshafi verður krýndur Allaballi ársins 2026, fær lárviðarsveig, og verðlaunin: 1x ferð á Keflavíkurgöngu. Alli mun svo taka stutt viðtal við Allaballann sem má nota á CV. Þetta er mikill heiður, fyrsti Allaballi sögunnar er krýndur í ár!
Þátttakendur í stafrófsröð
11 mögulegir Allaballar bíða eftir krýningu.